Ég, eins og flestir aðrir íslendingar, stunda sundlaugarnar inná milli og hef ég tekið eftir nokkrum hlutum sem stelpur gera við hárið á sér sem lætur mig vilja bara labba upp að þeim og pikka í þær.
Það sem ég tek hvað mest eftir og fer hvað mest í taugarnar á mér er þegar stelpur greiða á sér hárið á meðan það er enn blautt..
Afhverju á maður ekki að greiða hár þegar það er blautt?
- Fyrst og fremst er það vegna þess að þegar þú er búin í sturtu og hárið á þér er blautt þá er það mun viðkvæmara vegna þess að hittinn í sturtunni opnar alla enda á hárinu og verður til þess að þeir verða viðkvæmari og brotna af mun auðveldlega.
- Sumum fynnst nauðsynlegt að greiða á sér hárið þegar það er enn blautt en þá er best að gera það með greiðu með breiðu bili á milli tannanna eða svokallaðan Tangle Teezer.
![]() |
| Hægt er að finna og panta á netinu. |
Best er að þrífa hárið með 2-3 daga millibili.
- Lang best er að þurrka hárið vel með handklæði, renna smá hárnæringu sem stija má í hárinu og þorna náttúrulega.
- Ef þú þrífur hárið á þér daglega ertu að skola og þría burt náttúrulegar olíur sem hárrótin framleiðir, sem verður til þess að hárrótin heldur að hún þurfi að framleiða enþá meiri olíu. Að þvo á þér hárið daglega til lengri tíma veldur því þess vegna að hárrótin verður feitari og lýtur úr fyrir að vera skítug en endarnir á hárinu, sem framleiða enga olíu, verða þurrir og næringarlausir.
Fyrst þegar þú ert að hætta að þrífa hárið daglega getur það litið út fyrir að vera skítugt en það er bara vegna þess að hárrótin þarf að átta sig á að hún þarf ekki lengur að framleiða eins mikla olíu.
Frábær kostur til að nota þá daga sem þú þrífur ekki á þér hárið er að nota þurrsjampó.
| Mitt uppáháld er Batiste. |
Alls ekki nota mikinn hita á hárið.
- Það er löngu vitað að mikill hiti skaðar hárið. Það veldur því að hárið verður þurrt, vantar raka og flýtir fyrir slitnum og ónýtum endum.
- Það er löngu vitað að mikill hiti skaðar hárið. Það veldur því að hárið verður þurrt, vantar raka og flýtir fyrir slitnum og ónýtum endum.
- Reyndu að takmarka notkun hárblásara, sléttu- og krullujárna niður í aðeins 2-3 í viku og jafn vel minna. Ef þú þarft að nota þessi tæki passaðu þá að hafa hitan aldrei stilt of háan og ekki nota þau lengur en þú þarft. Passaðu einnig að nota ALLTAF hitavörn!
* Gott ráð ef vilt glans í hárið er að skola hárnæringuna úr með köldu vatni, það lokar rakan og næringuna inní hárinu og hjálpar til að loka opnum endum.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli