miðvikudagur, 8. maí 2013

Fyrsta færsla..


Sælar stelpur.

Ég er 17 ára gömul stelpa á höfuðborgarsvæðinu, ég kýs að vera ónafngreind (allavega fyrst til að byrja með).
Ég tók eftir að ekki voru til margar íslenskar bloggsíður um húðumhirðu, náttúrulegar uppskriftir og allt sem tengist snyrtifræði og förðun.
Þannig ég tók til hendinni og ákvað að stofna bloggsíðu þar sem ég get frætt ykkur um allt milli himins og jarðar.
Ég vil byrja á því að taka það fram að ég er ekki lærð, ég hef hins vegar eitt miklum tíma í að fræðast og lesa mér til um á netinu og í bókum.  Engin einstaklingur er eins og þess vegna getur verið að það sem henti fyrir mig geti ekki endilega hentað fyrir einhvern annan, og öfugt.  Þess vegna vil ég einnig benda á það að þetta eru eingöngu mínar skoðanir og allar ábendingar eða fróðleikur sem þið kunnið að luma á eru vel þegnar.
Ég mun gera mitt bersta til að gera þessa síðu sem veglegasta og vonast til að ykkur muni líka vel :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli