sunnudagur, 26. maí 2013

Hvernig á að þrífa förðunarburstana þína

Það er mjög mikilvægt að þrífa förðunarburstana þína reglulega, ef þú gerir það ekki safnast saman óhreinindi í hárunum sem getur valdið ýmsum vandræðum. Ef þú þjáist af óhreinni húð og færð bólur getur þetta verið eitt af ástæðunum. Ef þú þrífur ekki burstana, sérstaklega þá sem þú notar til að setja á þig andlitsfarða og púður safnast saman óhreinindi í burstunum og í hvert sinn sem þú notar þá ertu að dreifa óhreinindum á húðina. Varan sem þú ert að nota getur líka safnast uppí burstanum yfir tíma, flýtt fyrir eyðileggingu hans og valdið því að farðin fer ekki eins greiðilega á húðina og lítur ekki eins vel út og hann myndi annars.
Ég mæli með að þrífa förðunarbursta með 2-3 millibili, fer eftir hversu oft þú notar þá.

Besta leiðin til að þrífa burstana þína er að kaupa milda sápu sem inniheldur ekki lyktarefni eða sterk efni, ég hef prófað dýrar hreinsisápur sem eru sérstaklega hannað til að þrífa bursta frá MAC og öðrum dýrum vörumrekjum. En það sem hefur alltaf virkað best og stendur alltaf fyrir sínu er bara barnasjampó frá Jhonson's, það er einstaklega milt, hreinsar burstana vel og eyðileggur burstana ekki.


Þegar þú þrífur burstana þín er besta að kveikja á lítilli bunu á vaskinum, passa að vatnið sé alls ekki of heitt, bleyttu hárin í burstanum aðeins en passaðu að fá alls ekki vatn á milli járnsins þar sem hárin eru föst og handfangsins, ef það gerist getur vatnið leyst upp límið og burstinn sjálfur losnað frá handfanginu.

 

Settu lítin dropa af sápuni í lófan og nuddaðu bursatnum létt í hringi í lófunum, passa að nota alls ekki mikin þrýsting annars geturu eyðilagt hárin. 

 

Settu svo burstan undir bununa og kreystu létt þangað til að það kemur hreint vatn þegar þú kreystir.

Kreystu létt eins mikið vatn og þú getur úr burstanum og sléttu svo úr hárunum og þjappaðu þeim saman, legðu burstana á hreint handklæði og leyfðu að liggja þar þangað til alveg þurrir. Ef þú leyfir þeim ekki að liggja beinum og setur þá í glas þar sem hárin vísa upp, getur vatnið sem eftir er lekið ofan í hárin og orðið til þess að þá losna frá, eyðileggjast og detta úr burstanum. 




Engin ummæli:

Skrifa ummæli