Ég
hef alltaf haft mikin áhuga á húðinni og var sjálf alltaf með frekar slæma húð,
en eftir að ég þróaði rútínuna og fann fullkomnu vörurnar fyrir mína húð hefur
húðin á mér verið mun skárri og má ég ekki breyta mikið útaf þá versnar hún
strax aftur. Þess vegna langaði mig að deila þessu með ykkur, því ef þið eruð
með sama vandamál gætu þetta verið vörur sem þið getið prófað.
Ég hef alltaf verið með frekar blandaða húð, þ.e.a.s. hún verður feit á enninu, nefinu og hökunni (the t-zone). En annar staðar verður hún þurr og ég fæ þurrkubletti. Ef ég passa mig ekki á að þrífa húðina mín vel kvölds og morgna versnar hún strax og ég fæ bólur, sérstaklega ef ég þríf ekki af mér andlitsmálninguna á kvöldin.
Fyrir þær stelpur sem eru með svipaða húð og ég gæti þessar vörur virkað.

byrja alla morgna með The Clinique liqiuid facial soap, mild. Hún er sérstaklega
hönnuð og er mælt með henni fyrir fólk með blandaða húð, hún er mjög mild en
þrífur húðina án þess að láta mér líða eins og hún sé of hrein og þurr.
Næst
nota ég Clinique clarifying lotion 2, for dry combination skin. Það nota ég til
að taka í burtu öll óhreinindi sem gætu hafa orðið eftir á húðinni. The
Clinique clarifying lotion notar kemísk efni til að brjóta niður dauðar
húðfrumur, s.s. það gerir það sama og kornaskrúbbur nema er miklu mildari og
hentar því fólki með viðkvæma húð.
Ég helli bara smá í bómul og þurrka því létt yfir allt andlitið en passa að fara alls ekki í kringum augum.

nota ég augnakrem, það fer allt eftir dögum hvað ég nota.
Þegar ég er illa sofin og með mjög mikla bauga nota ég Clinique even better eyes, dark circle corrector. Það er með málm áhaldi efst sem kælir augun og hjálpar til við að draga úr þrota þegar þú nuddar kreminu undir augun. Kremið er litað blaxa bleikum lit sem á að hjálpa til við að draga úr bláa litnum undir augunum.
Hina dagana nota ég Clinique all about eyes rich, það hjálpar einnig til að við að draga úr baugum ef þú notar það til lengri tíma, það hjálpar líka til við að veita svæðinu í kringum augun mikin raka. Ef þú ert undir tvítugt mæli ég með að þú notir augnkrem sem er ekki með mikið af virkum efnum, eins og augnkrem sem eiga að koma í veg fyrir öldrun.
Finndu einhvað sem er mjög rakagefandi.
Góður ódýrari kostur fyrir þessu tvö krem, sem veitir einni raka í kringum augun og hjálpar til við að draga úr baugum er NIP+FAB Dark Circle Fix.

Eftir
að ég er búin að setja á mig augnkrem og leyfa andlitsvatninu að smjúga inní
húðina nota ég ACO Spotless Oil-Free Matifying daily moisturiser. Ég nota það á
morgnana vegna þess að það er ekki feitt og hjálpar að róa niður og jafna út
húðlitin og kemur í veg fyrir að húðin á mér glansi þegar lengra líður á
daginn. Það er algjörlega lyktarlaust og er gott fyrir þá sem eru með viðkvæma
húð vegna þess að það ertir ekki húðina.
Á
kvöldin nota ég nánast sömu rútínu nema ef ég er með andlitsfarða byrja ég á
því að nota MAC Cleanse Off Oil, ég nota eina pumpu af því og nudda allt
andlitið, líka augun. Olían brýtur niður allan farða áður en ég þríf húðina með
andlitssápunni.
Eftir að ég þríf olíuna í burtu með vatni endurtek ég sömu rútínu og um morguninn nema þá nota ég Clinique dramatically different moisturizing lotion sem er fyrir þurra til blandaða húð. Áður en ég byrjaði að nota það var húðin á mér ekki beint þurr, henni skorti bara allan raka og var líflaus. Rakakremið frá Clinique hefur hjálpað mér að koma rakanum aftur í húðin á mér og hún er miklu mýkri, geislar og er líflegri.

Næstum
öll rútínan mín inniheldur vörur frá Clinique, það er einungis vegna þess að
það eru vörurnar sem virka fyrir mig. Þetta eru góðar og vandaðar vörur en geta
líka verið dýrar, þess vegna mæli ég með að kaupa þær annað hvort á TaxFree
dögum í Hagkaup, í gjafasettum eða erlendis.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli