sunnudagur, 26. maí 2013

Hvernig á að þrífa förðunarburstana þína

Það er mjög mikilvægt að þrífa förðunarburstana þína reglulega, ef þú gerir það ekki safnast saman óhreinindi í hárunum sem getur valdið ýmsum vandræðum. Ef þú þjáist af óhreinni húð og færð bólur getur þetta verið eitt af ástæðunum. Ef þú þrífur ekki burstana, sérstaklega þá sem þú notar til að setja á þig andlitsfarða og púður safnast saman óhreinindi í burstunum og í hvert sinn sem þú notar þá ertu að dreifa óhreinindum á húðina. Varan sem þú ert að nota getur líka safnast uppí burstanum yfir tíma, flýtt fyrir eyðileggingu hans og valdið því að farðin fer ekki eins greiðilega á húðina og lítur ekki eins vel út og hann myndi annars.
Ég mæli með að þrífa förðunarbursta með 2-3 millibili, fer eftir hversu oft þú notar þá.

Besta leiðin til að þrífa burstana þína er að kaupa milda sápu sem inniheldur ekki lyktarefni eða sterk efni, ég hef prófað dýrar hreinsisápur sem eru sérstaklega hannað til að þrífa bursta frá MAC og öðrum dýrum vörumrekjum. En það sem hefur alltaf virkað best og stendur alltaf fyrir sínu er bara barnasjampó frá Jhonson's, það er einstaklega milt, hreinsar burstana vel og eyðileggur burstana ekki.


Þegar þú þrífur burstana þín er besta að kveikja á lítilli bunu á vaskinum, passa að vatnið sé alls ekki of heitt, bleyttu hárin í burstanum aðeins en passaðu að fá alls ekki vatn á milli járnsins þar sem hárin eru föst og handfangsins, ef það gerist getur vatnið leyst upp límið og burstinn sjálfur losnað frá handfanginu.

 

Settu lítin dropa af sápuni í lófan og nuddaðu bursatnum létt í hringi í lófunum, passa að nota alls ekki mikin þrýsting annars geturu eyðilagt hárin. 

 

Settu svo burstan undir bununa og kreystu létt þangað til að það kemur hreint vatn þegar þú kreystir.

Kreystu létt eins mikið vatn og þú getur úr burstanum og sléttu svo úr hárunum og þjappaðu þeim saman, legðu burstana á hreint handklæði og leyfðu að liggja þar þangað til alveg þurrir. Ef þú leyfir þeim ekki að liggja beinum og setur þá í glas þar sem hárin vísa upp, getur vatnið sem eftir er lekið ofan í hárin og orðið til þess að þá losna frá, eyðileggjast og detta úr burstanum. 




Heimagert - Mýkjandi líkamsskrúbbur

Ég veit ekki með ykkur en ég elska að taka frá kvöld einu sinni í viku þar sem ég dekra við sjálfa mig, fer í heitt bað með froðu eða baðbombu, set djúpnæringu í hárið og hreinsa húðina.
Í flest skipti bý ég mér yfirleitt til allskonar maska og dót sjálf heima og prófa allskonar uppskriftir. Ein verður þá oftar fyrir valinu en hinar og það er þessi skrúbbur.
Hann inniheldur aðeins þrjú hráefni, púðursykur (brown sugar), kókosolíu og sítrónusafa.

Kókosolían er einstaklega nærandi og mýkjandi fyrir húðina og inniheldur mikið að góðum næringarefnum.  Sykur hjálpar til við að skrúbba í burtu dauðar húðfrumur og nudda olíunni inní húðina, þú getur líka notað venjulegan sykur ef þú kýst en púðursykurinn er ekki eins grófur.  Sítrónan hjálpar einnig við að skrúbba húðina með sýrum sem hún inniheldur og að lýsa upp húðina og draga úr örum.  Hún hjálpar einnig til við að draga úr bólum, þess vegna er gott fyrir fólk með bólur á bakinu eða bringu að nota þennan skrúbb.

Uppskrift:
- 100 gr af púðursykri/sykri
- 50 ml kókosolía
- 1-3 msk af sítrónu (eftir því hvað þú vilt setja mikið)
Þú hrærir bara öllum hráefnum saman með skeið eða sleif.



Best er að nota skrúbbinn rétt áður en þú ferð í sturtu, á þurra húðina og inní sturtuklefanum. Þú tekur bara smá í einu og nuddar vel yfir allan líkamann í smá stund og hoppar svo í heita sturtu, þegar þú kemur úr sturtunni er húðin þín endurnærð og silkimjúk, hvet alla til að prófa!


Húðhreinsirútínan mín - Blönduð húð


Ég hef alltaf haft mikin áhuga á húðinni og var sjálf alltaf með frekar slæma húð, en eftir að ég þróaði rútínuna og fann fullkomnu vörurnar fyrir mína húð hefur húðin á mér verið mun skárri og má ég ekki breyta mikið útaf þá versnar hún strax aftur. Þess vegna langaði mig að deila þessu með ykkur, því ef þið eruð með sama vandamál gætu þetta verið vörur sem þið getið prófað.

Ég hef alltaf verið með frekar blandaða húð, þ.e.a.s. hún verður feit á enninu, nefinu og hökunni (the t-zone). En annar staðar verður hún þurr og ég fæ þurrkubletti. Ef ég passa mig ekki á að þrífa húðina mín vel kvölds og morgna versnar hún strax og ég fæ bólur, sérstaklega ef ég þríf ekki af mér andlitsmálninguna á kvöldin.
Fyrir þær stelpur sem eru með svipaða húð og ég gæti þessar vörur virkað.
Ég byrja alla morgna með The Clinique liqiuid facial soap, mild. Hún er sérstaklega hönnuð og er mælt með henni fyrir fólk með blandaða húð, hún er mjög mild en þrífur húðina án þess að láta mér líða eins og hún sé of hrein og þurr.


Næst nota ég Clinique clarifying lotion 2, for dry combination skin. Það nota ég til að taka í burtu öll óhreinindi sem gætu hafa orðið eftir á húðinni. The Clinique clarifying lotion notar kemísk efni til að brjóta niður dauðar húðfrumur, s.s. það gerir það sama og kornaskrúbbur nema er miklu mildari og hentar því fólki með viðkvæma húð.
Ég helli bara smá í bómul og þurrka því létt yfir allt andlitið en passa að fara alls ekki í kringum augum.


Næst nota ég augnakrem, það fer allt eftir dögum hvað ég nota.
Þegar ég er illa sofin og með mjög mikla bauga nota ég Clinique even better eyes, dark circle corrector. Það er með málm áhaldi efst sem kælir augun og hjálpar til við að draga úr þrota þegar þú nuddar kreminu undir augun. Kremið er litað blaxa bleikum lit sem á að hjálpa til við að draga úr bláa litnum undir augunum.
Hina dagana nota ég Clinique all about eyes rich, það hjálpar einnig til að við að draga úr baugum ef þú notar það til lengri tíma, það hjálpar líka til við að veita svæðinu í kringum augun mikin raka. Ef þú ert undir tvítugt mæli ég með að þú notir augnkrem sem er ekki með mikið af virkum efnum, eins og augnkrem sem eiga að koma í veg fyrir öldrun.
Finndu einhvað sem er mjög rakagefandi.
Góður ódýrari kostur fyrir þessu tvö krem, sem veitir einni raka í kringum augun og hjálpar til við að draga úr baugum er NIP+FAB Dark Circle Fix.


 

Eftir að ég er búin að setja á mig augnkrem og leyfa andlitsvatninu að smjúga inní húðina nota ég ACO Spotless Oil-Free Matifying daily moisturiser. Ég nota það á morgnana vegna þess að það er ekki feitt og hjálpar að róa niður og jafna út húðlitin og kemur í veg fyrir að húðin á mér glansi þegar lengra líður á daginn. Það er algjörlega lyktarlaust og er gott fyrir þá sem eru með viðkvæma húð vegna þess að það ertir ekki húðina.


Á kvöldin nota ég nánast sömu rútínu nema ef ég er með andlitsfarða byrja ég á því að nota MAC Cleanse Off Oil, ég nota eina pumpu af því og nudda allt andlitið, líka augun. Olían brýtur niður allan farða áður en ég þríf húðina með andlitssápunni. 


Eftir að ég þríf olíuna í burtu með vatni endurtek ég sömu rútínu og um morguninn nema þá nota ég Clinique dramatically different moisturizing lotion sem er fyrir þurra til blandaða húð. Áður en ég byrjaði að nota það var húðin á mér ekki beint þurr, henni skorti bara allan raka og var líflaus. Rakakremið frá Clinique hefur hjálpað mér að koma rakanum aftur í húðin á mér og hún er miklu mýkri, geislar og er líflegri.



Næstum öll rútínan mín inniheldur vörur frá Clinique, það er einungis vegna þess að það eru vörurnar sem virka fyrir mig. Þetta eru góðar og vandaðar vörur en geta líka verið dýrar, þess vegna mæli ég með að kaupa þær annað hvort á TaxFree dögum í Hagkaup, í gjafasettum eða erlendis.


föstudagur, 24. maí 2013

Tvenna vikunar.

Ég hef alltaf verið með mjög slæma bauga og þeir eru mjög dökkir. 
Það tók mig langan tíma að finna eitthvað sem felur baugana mína ágætlega. 
Það breyttist hins vegar þegar ég fann þessar tvær vörur. The Pro Longwear concealer frá MAC er þykkur, endist allan daginn, sest ekki í fínu línurnar undir augunum og hylur mjög vel, ég mæli hins vegar með því að nota gott augnkrem undir.
The BOBBI BROWN Tinted Eye Brightener er ekki eins þykkur og hyljarinn frá MAC en hylur samt mjög vel, ég nota hann til að hylja aðeins betur þegar ég þarf á því að halda og lýsa aðeins undir augunum.


föstudagur, 10. maí 2013

Brúnkukrem og undirbúningur

Eins og allir vita að þá geta ljósabekkir verið mjög óhollir fyrir húðina og valdið sortuæxli. Þess vegna kýs ég að nota frekar brúnkukrem þó svo að ég stelist einstaka sinnum í ljósbekkina..
Til að fá sem besta og náttúrulegasta árangurinn með brúnkukremi eru nokkur skref sem gott er að fylgja.

Lang best er bera brúnkukrem á hreina húð og þess vegna gott ráð að fara í sturtu áður. Í sturtu er mikilvægt að skrúbba í burt allar dauðar húðfrumur svo að brúnkukremið fari sem best á og verði ekki flekkótt.
Til þess að gera það er best að nota sérstakan bursta til að skrúbba húðina eða sturtusápu með litlum kornum sem exfoliate-ar húðina og gerir hana mjúka.

Þegar þú ert búin að þurrka þér er lang best að setja gott rakakrem sem fryst eftir að þú kemur úr sturtu vegna þess að þá smýgur það hraðar og lengra inní húðina. Mikilvægt er að nota krem sem er alls ekki feitt, smýgur alveg inní húðina og skilur ekki eftir feita filmu á húðinni. 
Til þess mæli ég með öðru hvoru af þessu, þau skilja ekki eftir filmu á húðinni.
Þú munt vila bíða í 15-20 mín eftir að þú berð á þig rakakremið áður en þú setur á þig brúnkukremið.

Næsta skref er bara að bera á sig sitt uppáhálds brúnkukrem.

Hérna eru fimm af mörgum sem ég hef prófað
 (í þeirri röð sem mér fynnst best).

Dove summer glow er mitt uppáhálds og efast að ég muni seint finna eitthvað sem mun koma í stað þess. Það er auðvelt að bera það á sig, gefur ágætis raka inní húðina (gætir jafn vel sleppt því að bera rakakrem áður). Dover summer glow hefur ekki þessa yfirþyrmandi lykt sem er af svo mörgum brúnkukremum og þegar það fer að dofna eftir nokkra daga verður það ekki flekkót.

Hawaiian Tropic gradual bronze moisturiser var mitt uppáhálds brúnkukrem í langan tíma áður en ég prófaði Dove summer glow. Það er eins og Dove kremið að því leiti að það er auðvelt að bera það á sig, það er gefur ágætis raka og dofnar jafnt af húðinni. Það sem hins vegar Dove summer glow hefur fram yfir þetta er lyktin og verðið, lyktin er frekar sterk og ég get fundið hana í þó nokkurn tíma eftir að kremið hefur farið inní húðina. Það er einnig töluvert dýrara en hitt.

Brasilian Tan 1 minute self tanning er gott þegar þú fattar allt í einu að þú þarft að fara einhvað fínt og gleymdir að bera á þig brúnkukrem. Það gerir það sem það segir á flöskunni, það gefur þér brúnku á stuttum tíma. Kremið er dökk brúnt á litin og þarf að passa sig vel þegar það er borið á vegna þess að það getur auðveldlega orðið flekkótt, það þorna fljótt og þess vegna þarf maður að vera röskur að bera það á sig. Ég mæli ekki með Brasilian Tan fyrir þær sem eru með mjög ljósa húð vegna þess að kremið gefur mjög dökkan lit fljótt. Það helst á ágætlega lengi og dofnar jafnt.

L'ORÉAL NutriBronze body lotion 24H* gradual light tan er gott fyrir þær sem vilja byggja upp tan á smá tíma. Það er frekar auðvelt að bera það á og gefur ágætis raka, mér fannst það hins vegar vera of lengi að smjúga inní húðina og þorna. L'ORÉAL NutriBronze fæst bæði fyrir ljósa og dökka húð og þess vegna gott fyrir þær sem eru með ljósa húð. Þetta brúnkukrem lyktar örugglega best af þeim sem ég hef prófað og það fer af nokkuð jafnt.

NIVEA Sun touch fannst mér alls ekki gott. Mér fannst það gefa appelsínugulan frekar en brúnan lit. Áferðin á kremin er gel kend, hún dreifist frekar erfiðlega á líkamann og fannst mér ég þurfa að nota ansi mikið fyrir allan líkamann. Lyktin er líka yfirþyrmandi og að mér fannst fór aldrei af mér. Liturinn dofnaði ekki jafnt og ég verða frekar flekkót.



fimmtudagur, 9. maí 2013

Sumar og sól - Létt förðun.

Jæja stelpur nú er sumar loksins gengið í garð og sólin farin að skína, þess vegna ákvað ég að henda inn einni færslu með hugmynd af vörum fyrir létta sumarförðun og líka nokkra punkta sem þarf að huga að yfir sumarið.

Sólarvörn...
Alltaf að setja á sig sólarvörn ef þú ætlar að vera úti í sólinni, sérstaklega á andlitið. Sólin flýtir fyrir öldrun húðarinnar og getur valdið ýmsum öðrum vandamálum, s.s. sólbruna.
Sólarvörn getur oft verið mikið feit og þess vegna valdið bólum ef hún er sett í andlitið, þess vegna er lang sniðugast að fjárfesta í góðri sólarvörn sérstaklega fyrir andlitið, ein af mínum uppáhálds sem ég mæli alltaf með er frá La Roche Posay.

Það getur líka verið mikilvægt að verja hárið fyrir sólinni, útfjólubláugeislarnir frá sólinni geta valdið því að hárið þornar upp. Margar vörur í dag hafa vörn gegn UV geislum sólarinnar sem gott er að bera í hárið á morgnanna áður en farið er út. 
Hér eru tvær vörur sem gott er að nota, got2b smooth'n chic smoothing lotion er létt krem sem þú berð í hárið, bæði þegar það er þurrt eða þegar það er blautt. TRESemmé hitavörnin geturu einnig spreyjað bæði í blautt og þurrt hárið. Næstum allar hitavörurnar frá TRESemmé hafa UV protection. 


Þegar sólin skín og heitt er úti getur oft verið óþæginlegt að vera með mikin farða í andlitinu eins og meik. Í staðin getur verið frábært að bera á sig litað dagkrem eða svo kalla BB cream. Til eru margar gerðir, bæði dýrar og ódýrar. Ef þú ert með feita og óhreina húð (bólur) þá eru þetta þau BB cream sem ég mæli með. 
Einnig mæli ég steklega með Garnier 2 in 1 Tinted Eye Roll-on til að fela mestu þreytumerkin í kringum augun, það er léttur hyljari sem sest ekki auðveldlega í fínar línur undir augunum og helst vel.

Ef þú ert nú þegar með feita húð getur hitin kallað fram mikin glans í húðina og þess vegna er gott að strjúka smá púðri yfir ennið, nefið og höku (t-zone) til að hjálpa að koma í veg fyrir það.
Mitt uppáháld er The Dream Matte powder frá Maybelline.

Það sem fæstir vita er að sólin getur líka brennt varirnar sem getur orðið til þess að þær verða þurrar og geta valdið sviða. Þá er gott að eiga einn gloss eða varasalva með sólarvörn og UV protection. 

Svo er bara að setja á sig uppáhálds vatnshelda maskarann sinn, fylla aðeins inní augabrúnirnar og kíkja útí sólina :) 
The L'ORÉAL Telescopic maskarinn er mjög góður fyrir
þessa daga þegar þú vilt hafa náttúrulega augnhár.

Gleðilegt sumar :)







miðvikudagur, 8. maí 2013

Uppáhálds vörurnar mínar!

Mun birta færslur um allar þessar vörur þegar lengra líður á bloggið :D

Viltu lengra, heilbrigðara og fallegra hár?


Ég, eins og flestir aðrir íslendingar, stunda sundlaugarnar inná milli og hef ég tekið eftir nokkrum hlutum sem stelpur gera við hárið á sér sem lætur mig vilja bara labba upp að þeim og pikka í þær.
Það sem ég tek hvað mest eftir og fer hvað mest í taugarnar á mér er þegar stelpur greiða á sér hárið á meðan það er enn blautt..

Afhverju á maður ekki að greiða hár þegar það er blautt?
   - Fyrst og fremst er það vegna þess að þegar þú er búin í sturtu og hárið á þér er blautt þá er það mun viðkvæmara vegna þess að hittinn í sturtunni opnar alla enda á hárinu og verður til þess að þeir verða viðkvæmari og brotna af mun auðveldlega.
   - Sumum fynnst nauðsynlegt að greiða á sér hárið þegar það er enn blautt en þá er best að gera það með greiðu með breiðu bili á milli tannanna eða svokallaðan Tangle Teezer.

Hægt er að finna og panta á netinu.


Best er að þrífa hárið með 2-3 daga millibili. 
  - Lang best er að þurrka hárið vel með handklæði, renna smá hárnæringu sem stija má í hárinu og þorna náttúrulega.
  - Ef þú þrífur hárið á þér daglega ertu að skola og þría burt náttúrulegar olíur sem hárrótin framleiðir, sem verður til þess að hárrótin heldur að hún þurfi að framleiða enþá meiri olíu. Að þvo á þér hárið daglega til lengri tíma veldur því þess vegna að hárrótin verður feitari og lýtur úr fyrir að vera skítug en endarnir á hárinu, sem framleiða enga olíu, verða þurrir og næringarlausir. 
Fyrst þegar þú ert að hætta að þrífa hárið daglega getur það litið út fyrir að vera skítugt en það er bara vegna þess að hárrótin þarf að átta sig á að hún þarf ekki lengur að framleiða eins mikla olíu. 
Frábær kostur til að nota þá daga sem þú þrífur ekki á þér hárið er að nota þurrsjampó. 

Mitt uppáháld er Batiste. 


Alls ekki nota mikinn hita á hárið.
    - Það er löngu vitað að mikill hiti skaðar hárið. Það veldur því að hárið verður þurrt, vantar raka og flýtir fyrir slitnum og ónýtum endum.
   - Reyndu að takmarka notkun hárblásara, sléttu- og krullujárna niður í aðeins 2-3 í viku og jafn vel minna. Ef þú þarft að nota þessi tæki passaðu þá að hafa hitan aldrei stilt of háan og ekki nota þau lengur en þú þarft. Passaðu einnig að nota ALLTAF hitavörn!

* Gott ráð ef vilt glans í hárið er að skola hárnæringuna úr með köldu vatni, það lokar rakan og næringuna inní hárinu og hjálpar til að loka opnum endum.

Fyrsta færsla..


Sælar stelpur.

Ég er 17 ára gömul stelpa á höfuðborgarsvæðinu, ég kýs að vera ónafngreind (allavega fyrst til að byrja með).
Ég tók eftir að ekki voru til margar íslenskar bloggsíður um húðumhirðu, náttúrulegar uppskriftir og allt sem tengist snyrtifræði og förðun.
Þannig ég tók til hendinni og ákvað að stofna bloggsíðu þar sem ég get frætt ykkur um allt milli himins og jarðar.
Ég vil byrja á því að taka það fram að ég er ekki lærð, ég hef hins vegar eitt miklum tíma í að fræðast og lesa mér til um á netinu og í bókum.  Engin einstaklingur er eins og þess vegna getur verið að það sem henti fyrir mig geti ekki endilega hentað fyrir einhvern annan, og öfugt.  Þess vegna vil ég einnig benda á það að þetta eru eingöngu mínar skoðanir og allar ábendingar eða fróðleikur sem þið kunnið að luma á eru vel þegnar.
Ég mun gera mitt bersta til að gera þessa síðu sem veglegasta og vonast til að ykkur muni líka vel :)