sunnudagur, 26. maí 2013

Heimagert - Mýkjandi líkamsskrúbbur

Ég veit ekki með ykkur en ég elska að taka frá kvöld einu sinni í viku þar sem ég dekra við sjálfa mig, fer í heitt bað með froðu eða baðbombu, set djúpnæringu í hárið og hreinsa húðina.
Í flest skipti bý ég mér yfirleitt til allskonar maska og dót sjálf heima og prófa allskonar uppskriftir. Ein verður þá oftar fyrir valinu en hinar og það er þessi skrúbbur.
Hann inniheldur aðeins þrjú hráefni, púðursykur (brown sugar), kókosolíu og sítrónusafa.

Kókosolían er einstaklega nærandi og mýkjandi fyrir húðina og inniheldur mikið að góðum næringarefnum.  Sykur hjálpar til við að skrúbba í burtu dauðar húðfrumur og nudda olíunni inní húðina, þú getur líka notað venjulegan sykur ef þú kýst en púðursykurinn er ekki eins grófur.  Sítrónan hjálpar einnig við að skrúbba húðina með sýrum sem hún inniheldur og að lýsa upp húðina og draga úr örum.  Hún hjálpar einnig til við að draga úr bólum, þess vegna er gott fyrir fólk með bólur á bakinu eða bringu að nota þennan skrúbb.

Uppskrift:
- 100 gr af púðursykri/sykri
- 50 ml kókosolía
- 1-3 msk af sítrónu (eftir því hvað þú vilt setja mikið)
Þú hrærir bara öllum hráefnum saman með skeið eða sleif.



Best er að nota skrúbbinn rétt áður en þú ferð í sturtu, á þurra húðina og inní sturtuklefanum. Þú tekur bara smá í einu og nuddar vel yfir allan líkamann í smá stund og hoppar svo í heita sturtu, þegar þú kemur úr sturtunni er húðin þín endurnærð og silkimjúk, hvet alla til að prófa!


Engin ummæli:

Skrifa ummæli