Sólarvörn...
Alltaf að setja á sig sólarvörn ef þú ætlar að vera úti í sólinni, sérstaklega á andlitið. Sólin flýtir fyrir öldrun húðarinnar og getur valdið ýmsum öðrum vandamálum, s.s. sólbruna.
Sólarvörn getur oft verið mikið feit og þess vegna valdið bólum ef hún er sett í andlitið, þess vegna er lang sniðugast að fjárfesta í góðri sólarvörn sérstaklega fyrir andlitið, ein af mínum uppáhálds sem ég mæli alltaf með er frá La Roche Posay.
Það getur líka verið mikilvægt að verja hárið fyrir sólinni, útfjólubláugeislarnir frá sólinni geta valdið því að hárið þornar upp. Margar vörur í dag hafa vörn gegn UV geislum sólarinnar sem gott er að bera í hárið á morgnanna áður en farið er út.
Hér eru tvær vörur sem gott er að nota, got2b smooth'n chic smoothing lotion er létt krem sem þú berð í hárið, bæði þegar það er þurrt eða þegar það er blautt. TRESemmé hitavörnin geturu einnig spreyjað bæði í blautt og þurrt hárið. Næstum allar hitavörurnar frá TRESemmé hafa UV protection.
Þegar sólin skín og heitt er úti getur oft verið óþæginlegt að vera með mikin farða í andlitinu eins og meik. Í staðin getur verið frábært að bera á sig litað dagkrem eða svo kalla BB cream. Til eru margar gerðir, bæði dýrar og ódýrar. Ef þú ert með feita og óhreina húð (bólur) þá eru þetta þau BB cream sem ég mæli með.
Einnig mæli ég steklega með Garnier 2 in 1 Tinted Eye Roll-on til að fela mestu þreytumerkin í kringum augun, það er léttur hyljari sem sest ekki auðveldlega í fínar línur undir augunum og helst vel.
Ef þú ert nú þegar með feita húð getur hitin kallað fram mikin glans í húðina og þess vegna er gott að strjúka smá púðri yfir ennið, nefið og höku (t-zone) til að hjálpa að koma í veg fyrir það.
| Mitt uppáháld er The Dream Matte powder frá Maybelline. |
Það sem fæstir vita er að sólin getur líka brennt varirnar sem getur orðið til þess að þær verða þurrar og geta valdið sviða. Þá er gott að eiga einn gloss eða varasalva með sólarvörn og UV protection.
Svo er bara að setja á sig uppáhálds vatnshelda maskarann sinn, fylla aðeins inní augabrúnirnar og kíkja útí sólina :)
| The L'ORÉAL Telescopic maskarinn er mjög góður fyrir þessa daga þegar þú vilt hafa náttúrulega augnhár. |
Gleðilegt sumar :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli